top of page

1

Málörvun í leikskóla

6

. VERKEFNI 

Aðgerðir og nýjungar sem unnið verður með á næstunni

KYNNING

Setjið aðgerðir bak orðanna, takið eitt skref í einu.

Þegar þið hafi unnið með efni og æfingar í „Tungumál er gjöf“ er mælt með því að þið takið saman hugmyndir ykkar og gerið áætlun um verkefin sem þið hyggist vinna með áfram. Takið eitt skref í einu og byrjið ekki á  of mörgum verkefnum í senn, gefið ykkur frekar tækifæri til að vinna litla sigra sem geta orðið að mörgum.
 

Gerið nýjungar að hefðum

Það getur tekið tíma að innleiða nýjar venjur í daglegu starfi og þess vegna er mælt með því að þið komið ykkur saman um hvaða verkefni þið ætlið að innleiða, hver á að framkvæma þau og hvernig þið hyggist fylgja þeim eftir.

1. SKREF - KYNNING:

Biddu þátttakendur, hvern um sig, um að skoða þær æfingar sem þið hafið gert og einnig samantektirnar sem þið hafið skráð á flettitöfluna. Biðjið þá um að ræða saman tvo og tvo um hvað þeir vilja gera á næstu vikum eða mánuði til að styrkja málþroska tvítyngdu barnanna. Skiptist á að skrifa tillögurnar á flettitöfluna.


2.SKREF - ÆFING:

Þú getur valið eina af æfingunum sem fylgja hér á eftir til að ræða um hvaða verkefni þið ætlið að fara af stað með og hver gerir hvað og hvenær.

 

3. SKREF - SKIPULEGGIÐ MATSFUNDI: 

Komið ykkur saman um dagsetningu þegar þið munið skoða og meta hvernig ykkur hefur gengið með þær nýjungar sem þið hafið innleitt. Til að hvetja til fundarins má nýta efni í 7. málefni Mat á nýjungum sem hafa verið innleiddar. 

 

4. SKREF - FRAMKVÆMD:

Látið orðið ganga svo allir þátttakendur fái tækifæri til að segja frá því hvað þeir hafa fengið út úr fundinum þeir geta t.d. nefnt tvennt sem þeim finnst mikilvægast. Notið hámark ½ mínútu á mann.

Tillögur til fundarstjóra

bottom of page