top of page

1. Málörvun í leikskóla

Fundaleiðbeiningar og verkfæri til að nýta í samræðum

um málörvun tvítyngdra barna í leikskólum

VELKOMIN

 

Þessi hluti inniheldur fundaleiðbeiningar og umræðuefni sem hægt er að nota á starfsmannafundum þegar þið veltið fyrir ykkur hvernig þið viljið þróa vinnu ykkar í tengslum við málörvun tvítyngdra barna.

 

Fundaleiðbeiningarnar hjálpa ykkur við að skoða hvernig þið getið hugsað málörvun tvítyngdra barna inn í leikskólastarfið í tengslum við þemaverkefni, hversdagslegar athafnir og samtöl ásamt því hvernig þið getið metið málþroska barnsins jafnt og þétt.

 

Þið getið valið um að nota leiðbeiningarnar í heild sinni eða einstök verkefni og æfingar sem ykkur finnast áhugaverðar og mikilvægar.

 

Með hverju verkefni er tímaáætlun sem segir til um hversu langan tíma það tekur u.þ.b. að fara í gegnum æfinguna og umræðurnar á starfsmannafundinum.

bottom of page