. VERKEFNI
5
Samræður við foreldrana um málörvun á heimilinu
Málörvun og foreldrasamstarf
KYNNING
Ath. Veltið því fyrir ykkur hvort þörf er á túlki til að hægt sé að halda uppi góðum samræðum við foreldra. Kynnið ykkur þær reglur sem gilda um túlkaþjónustu.
Foreldrar hafa mikil áhrif á málþroska barna sinna.
Foreldrar gera sér ekki allir ljóst hversu mikil áhrif þeir hafa á málþroska barna sinna. Þess vegna getið þið átt þátt í að vekja athygli foreldra á því hvernig þeir geta lagt sitt af mökum til að örva málþroska barnsins á heimilinu.
Þið sem leikskólakennarar getið sýnt og sagt foreldrunum frá því hvernig þið vinnið með tungumálið í leikskólanum og hvernig foreldrar geta stutt við starfið heima fyrir.
Það er mikilvægt að virkja foreldra markvisst í vinnunni með tungumálið. Hægt er að nýta foreldrafundi/samráðsfundi og foreldarviðtöl til að gefa foreldrum tiltekin dæmi um hvernig þeir geta skapað auðugt lærdómsumhverfi á heimilinu – bæði á íslensku og á móðurmálinu.
Vinnið út frá áhuga foreldra
Það er alltaf matsatriði hversu mörg góð ráð og verkefni maður á að gefa foreldrunum. Áhugi foreldra sker úr um það hvort þeir fara að vinna að málörvandi verkefnum og venjum á heimilinu. Þess vegna er mælt með því að vera vakandi fyrir áhuga foreldranna og tækifærunum sem þeir hafa, og á grundvelli þess má svo leggja til viðeigandi málörvunarverkefni. Sýnið þolinmæði og verið opin fyrir hugmyndum foreldra.
1. SKREF - KYNNING:
Segðu í stuttu máli frá því að þið ætlið að vinna með efnið: Samræður við foreldrana um málörvun á heimilinu.
Þú getur t.d.
Gengið út frá kynningarblaðinu hér á undan
Gefið dæmi um hvenær þið hvetjið foreldrana til að örva mál barnsins
á heimilinu
2.SKREF - ÆFING:
Prentaðu út blaðið með æfingunni „ Skipuleggið foreldrafund/ samráðsfund um málörvun á heimilinu og dreifið hugmyndaskránni sem er í hlutanum„ Málörvun á heimilinu“ til hópanna. Biddu hvern hóp um að gera æfinguna og finna hugmyndir að fjölskylduverkefnum sem þeir geta bent foreldrunum á.
3. SKREF - SAMANTEKT Á ÆFINGUNNI:
Gerið stutta samantekt frá hverjum hópi, þar sem þátttakendur segja frá því sem þeir hafa rætt.
4. SKREF - FRAMKVÆMD:
Ræðið saman um það hvenær þið ætlið að halda foreldrafund um málörvun og hver á að taka ábyrgð á því að kynna einstök efni á fundinum.